2464

14 Miðvikudagur 29. ágúst 2018 DAGSKRÁIN - Fréttablað Suðurlands Ljósritun og gormun meðan beðið er! Eyravegi 25 - Selfossi † Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar ömmu okkar, tengdamóður og langömmu, BJARNHEIÐAR ÁSTGEIRSDÓTTUR Ártúni 10, Selfossi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunar- heimilinu Kumbaravogi og Fossheimum fyrir góða umönnun. Bjarnheiður Ástgeirsdóttir Erlendur Ástgeirsson Elísabet Sveinsdóttir Sigurrós Jóhannsdóttir Sigmar Ólafsson Kristín Andersdóttir Kristbjörn Ólafsson og barnabarnabörn. Ráðhús Árborgar verður lokað frá kl. 12.00 á föstudaginn 31. ágúst. Starfsleyfi til kynningar Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá at- vinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br ., eru eftir- [HSPU Z[HYMZSL`ÄZZRPS`YóP [PS R`UUPUNHY OQm /LPSIYPNóPZLM[PYSP[P :\ó\YSHUKZ /:3 Hó (\Z[\Y]LNP m :LSMVZZP VN m ZRYPMZ[VM\ :]LP[HYMtSHNZPUZ kSM\ZZ /HMUHYILYNP îVYSmRZO€MU! • 6WDUIVOH\ƂVVNLO\U²L I\ULU )LVNPDUN HKI YHJQD KHLWORIWÀXUUNXQDU ƂVNDIXU²D D² +DIQDUVNHL²L  RUO£NVK¸IQ • 6WDUIVOH\ƂVVNLO\U²L I\ULU %M¸UJXQ HKI YHJQD HIQLVW¸NX RJ HIQLVYLQQVOX ¯ /DPEDIHOOL  UHQJVOXP ˜OIXVL :[HYMZSL`ÄZZRPS`YóPU LY\ LPUUPN HóNLUNPSLN m OLPTHZxó\ /LPSIYPNóPZLM[PYSP[Z :\ó\YSHUKZ ^^^ OZS PZ ([O\NHZLTK\T ZRHS ZRPSHó ZRYPÅLNH m ZRYPMZ[VM\ /:3 Hó (\Z[\Y]LNP :LSMVZZP -YLZ[\Y [PS Hó ZRPSH PUU H[O\NHZLTK\T LY [PS september næstkomandi. /LPSIYPNóPZLM[PYSP[ :\ó\YSHUKZ (\Z[\Y]LN\Y ‹ :LSMVZZP ‹ :xTP! ‹ OZS'OZS PZ F rjálsíþróttakonan Hulda Sigurjónsdóttir er alin upp undir Eyjafjöllunum á bænum Mið-Mörk. Hún á langan feril að baki í frjálsum íþróttum, var 6 ára hnáta þegar hún byrjaði að æfa frjálsar og fann sig strax í greininni. Um 10 ára aldurinn var kúluvarp orðin uppáhalds greinin. Aðspurð hvað það er sem heillar við kúluna stendur ekki á svari: „Það sem heillar mig fyrst og fremst við kúluna er tæknin á bakvið greinina, ná tökum á tækninni og ná árangrinum fram. Það er alveg heilmikil vinna í þessu sem er svo skemmtileg.“ Hulda keppir fyrir hönd Íþróttafélagsins Suðra en æfir með afrekshópi Ármanns. Einnig hefur hún keppt fyrir Íslands hönd í flokki F20 sem er flokkur þroskahamlaðra og er með tvö stórmót að baki; EM 2102 og EM 2016 og Grandprix mótum IPC. Nú er hún nýkomin heim frá sínu þriðja Evrópumóti, með kast upp á 9,40 m og 7. sætið upp á vasann. Íþróttakonan er ánægð með árangurinn og sagði að loknum úrslitum: „Ég tek því rólega í dag og fer svo strax í það að undirbúa mig fyrir HM á næsta ári.” Krafturinn, áræðnin og gleðin sem fylgir Huldu er áberandi ásamt hlýju brosinu. Það kom því ekki á óvart að hún hefði verið valin sem fyrirliði kvenna á nýloknu Evrópumóti. Aðspurð um hvaða þýðingu það hefði að vera fyrirliði segir Hulda: „Það að vera fyrirliði kemur til með að nýtast mér vel. Minn draumur er að finna þessa ungu krakka sem eru kannski á sama stað og ég var þegar ég var að byrja og hjálpa þeim áfram. Sýna þeim að allt er hægt. Ég Þrisvar á EM í frjálsum íþróttum - Hulda Sigurjónsdóttir, frjálsíþróttakappi var t.d. á EM núna og stefni á HM eftir ár.“ Það er ljóst að hún brennur fyrir íþróttinni en brennur einnig fyrir því að miðla af þekkingu og reynslu sinni til annarra. Þegar horft er yfir íþróttasögu Huldu er ljóst að þar fer einstaklingur með skýr markmið og einbeitingu. Markmiðið er að komast á Ólympíuleikana 2020. Aðspurð um hvað það er sem liggur að baki góðum árangri kemur svarið um hæl: „Ég hugsaði með mér hér áðan að í vetur hefði ég sennilega æft meira en venjulegt fólk sefur,“ segir Hulda hlæjandi. Æfingarnar snúast ekki bara um að kasta kúlu endalaust heldur lyftir hún lóðum tvisvar á dag, hleypur til að ná upp þoli og sprengikrafti. Það er ljóst að hér fer skeleggur íþróttagarpur sem ætlar sér stóra hluti. Viðtal: gpp Hulda kastar kúlunni fumlaust á EM fatlaðra 2018. Sérkjör fyrir nema í strætó á Suðurlandi S unnlendingar sem stunda nám á höfuðborgarsvæðinu geta keypt persónubundin strætókort hjá Samtökum sunn- lenskra sveitarfélaga (SASS) á sérkjörum. Eru þeir sem það geta hvattir til að nýta sér þetta tilboð. Nemendur af Suðurlandi sem sækja nám á höfuðborgar- svæðinu geta nú keypt kort í Strætó á kr. 90.000 á önn. Sama er hvort menntastofnunin á höfuðborgarsvæðinu er á framhalds- eða háskólastigi. Til að fá útgefið Strætókort eða nemakortið þarf að greiða kr. 90.000 fyrir önnina sem leggja þarf inn á bankareikning SASS. Því næst sendir nemandinn greiðslukvittun á netfangið sass@sass.is , ásamt fullu nafni, kennitölu, gildistíma og svæði sem ekið er frá/til. Þá þarf einnig staðfestingu skóla um skólavist og mynd af viðkomandi á rafrænu formi. Stætókortið er síðan afgreitt eins fljótt og verða má en ef það er sent í ábyrgðarpósti getur afgreiðslan tekið 7 til 10 virka daga. Þráðlaust net (WiFi) er aðgengilegt í Strætó og um leið og ferðamátinn er öruggur er hægt að nýta tímann í heima- vinnu. Nemendur sem stunda nám á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að nýta sér þjónustu Strætó og þau sérkjör sem nú eru í boði. Mynd: SASS.

RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz