Nemendur á miðstigi Bláskógaskóla í Reykholti hófu í haust vinnu við verkefnið „Vistheimt“ í samvinnu við Landgræðslu ríkisins, Landvernd og Landgræðslufélag Tungnamanna. Verkefnið er þema í Grænfánaverkefni Landverndar.
Vistheimt er ferli sem stuðlar að bata vistkerfis sem hefur hnignað af einhverjum ástæðum og snýr að uppgræðslu og endurheimt gróðurs á örfoka landi. Það hjálpar nemendum betur að skilja hvernig hægt er að aðstoða náttúruna á svæðum sem hafa skemmst eða raskast til dæmis vegna eldgosa, beitar eða veðurfars. Þeir fá jafnframt skilning á því að með því að auka grósku, frjósemi og líffjölbreytileika svæðisins vinna þeir líka gegn loftslagsbreytingum.
Nemendur fóru með kennurum sínum upp í Rótarmannatorfur við Bláfell mánudaginn 10. september sl. og hófu starf sitt með því að gróðursetja birki og baunagras. Í vor er fyrirhugað að gera ýmis konar rannsóknir og tilraunir bæði á hálendinu, í skólastofunni og í nágrenni skólans. Verkefnið er þverfaglegt og kemur inn á alla þætti kennslunnar.