![Hvetja Mílu til að bæta slæmt netsamband á Eyrarbakka Hvetja Mílu til að bæta slæmt netsamband á Eyrarbakka](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/02/arborg_fanar.jpg?fit=677%2C456&ssl=1)
Á fundi bæjarráðs Árborgar í liðinni viku voru til umræðu gæði nettengingar í sveitarfélaginu. „Í kjölfar frétta af slæmu netsambandi í austurhluta Eyrarbakka kom fram hjá upplýsingafulltrúa Mílu að hægt væri að leysa málin með uppsetningu á einföldum tengiskápum. Netsambönd eru svo mikilvægur þáttur í lífi nútímafólks að ekki er hægt að una við óbreytt ástand,“ segir í fundargerð. „Bæjarráð hvetur Mílu eindregið til þess að bregðast við umkvörtunum íbúa vegna málsins. Jafnframt var bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.“