Þann 10. september ár hvert er alþjóðlegur dagur gegn sjálfsvígum. Af því tilefni verður samverustund mánudaginn 10. september nk. kl. 20:00 í Selfosskirkju. Það er séra Guðbjörg Arnardóttir sem leiðir stundina. Á dagskrá verða tónlistaratriði og Sigríður Elín Leifsdóttir flytur hugleiðingu um efnið í kjölfar eigin reynslu. Samverustundin er öllum opin. Að dagskrá lokinni gefst fólki tækifæri til að eiga samfélag yfir kaffibolla í safnaðarheimilinu.