![Plastlaus september á Suðurlandi Plastlaus september á Suðurlandi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/08/Plastlaus-september.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Í september á hverju ári fer fram árvekniátakið Plastlaus september. Átakinu er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti.
![Mynd fengin af vefsíðunni Umhverfi Suðurlands.](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/08/pokar.jpg?resize=112%2C112&ssl=1)
Besta leiðin til að draga úr notkun á einnota plasti er að sneiða hjá því. Það má m.a. gera með því að nota fjölnota innkaupapoka, velja vörur sem eru umbúðalausar eða úr öðrum umhverfisvænni umbúðum t.d. fjölnota umbúðir.
Á vefsíðunni Umhverfis Suðurland má finna heilmikið af upplýsingum um skaðsemi plast fyrir umhverfið og fólk auk fjölda ábendinga um hvernig fólk getur minnkað plastnotkun.