Bræðurnir Helgi og Hermann Ingi Hermannssynir tóku upp nýtt lag og myndband á dögunum. Myndbandið er tekið upp í Ólafsvallakirkju í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í bakgrunni má sjá altaristöflu eftir listmálarann Baltasar Samper. Lagið „Einn bjartan sumardag“ er að finna á plötunni Víkingaveisla.