![Guðmundur Tyrfingsson ehf. bauð lægst í frístundaakstur í Árborg Guðmundur Tyrfingsson ehf. bauð lægst í frístundaakstur í Árborg](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/04/arborg_hringtorg.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Síðastliðinn mánudag voru opnuð tilboð í „Frístundaakstur í Sveitarfélaginu Árborg“. Tvö fyrirtæki skiluðu inn tilboði en það voru Guðmundur Tyrfingsson ehf. og Icelandsbus – all kind of buses ehf. Guðmundur Tyrfingsson ehf. bauð 3.551.050 kr. og Icelandbus ehf. 4.936.315 kr.
Á vef Árborgar kemur fram að gert er ráð fyrir að frístundaaksturinn hefjist í byrjun september nk. en tímaáætlanir verða kynntar í næstu viku.