![Kveðjumessa sr. Kristjáns í Eyrarbakkakirkju Kveðjumessa sr. Kristjáns í Eyrarbakkakirkju](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/08/Eyrarbakkakirkja-e1534253167453.jpg?fit=768%2C1024&ssl=1)
Sr. Kristján Björnsson sem vígður hefur verið vígslubiskup í Skálholti mun kveðja sína gömlu söfnuði í Eyrarbakkaprestakalli en þeim hefur hann þjónað frá 2015. Kveðjumessan verður í Eyrarbakkakirkju þann 19. ágúst kl 14.00. Þar mun sr. Kristján predika. Með honum þjónar sr. Arnaldur Bárðarson sem settur hefur verið til þjónustu í prestakallinur, kór Eyrarbakkakirkju syngur og organisti er Haukur Arnarr Gíslason. Kaffiveitingar verða í Rauða húsinu í boði sóknarnefnda prestakallsins. Allir eru velkomnir og vonast sóknarnefndir og settur prestur eftir sem flestum til að kveðja þau vígslubiskupshjónin og samfagna með þeim nýjum starfa innan kirkjunnar.