![Ölfusárbrú lokar við Selfoss kl. 16 Ölfusárbrú lokar við Selfoss kl. 16](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/08/bruin2-1.jpg?fit=768%2C547&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/08/bruin2.jpg?resize=319%2C227&ssl=1)
Síðastliðna nótt hófust framkvæmdir við brúna yfir Ölfusá við Selfoss. Brúnni var lokað á miðnætti í gær 12. ágúst en var opnuð aftur fyrir umferð kl. 06:00 í morgun 13. ágúst. Frá klukkan 16:00 þann 13. ágúst verður brúin lokuð í allt að viku. Umferð verður beint um Óseyrarbrú (34) og Þrengsli (39). Gangandi vegfarendur komast þó um Ölfusárbrú.