![Líflegt í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á Eyrarbakka Líflegt í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á Eyrarbakka](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/08/Uppbygging-á-eyrarbakka.jpg?fit=768%2C576&ssl=1)
Eftirspurn hefur aukist eftir húsnæði á Eyrarbakka eins og annarsstaðar á Suðurlandi. Framboðið var ekki mikið af húsnæði á bakkanum, en eftirspurnin til staðar. Áður hafði lítið sem ekkert verið af nýbyggingum á Eyrarbakka í langan tíma. Smiðirnir sem voru að steypa upp sökkla þennan júlímorgun reistu m.a. parhús í fyrra. Það eru fleiri hús í farvatninu hjá öðrum aðilum sem áætlað er að reisa á næstu misserum.