![Elmar Gilbertsson tenórsöngvari á Menningarveislu Sólheima Elmar Gilbertsson tenórsöngvari á Menningarveislu Sólheima](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/07/elmar_gilbertsson2.jpg?fit=667%2C501&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/07/elmar_gilbertsson1.jpg?resize=300%2C300&ssl=1)
Rokkarinn, gítarleikarinn, rafeindavirkinn, eldsmiðurinn og tenórsöngvarinn Elmar Gilbertsson ætlar að þenja raddböndin og flytja nokkur vel valin lög á Menningarmessu í Sólheimakirkju á morgun laugardaginn 21. júlí klukkan 14:00. Eins og ávallt er ókeypis aðgangur að öllum viðburðum Menningarveislunnar og allir hjartanlega velkomnir.
Elmar hefur sungið víða og túlkað fjölmargar persónur óperubókmenntanna í allnokkrum óperuhúsum og tónlistarsölum víða um heim. Hann er margverðlaunaður söngvari og hlaut bæði Grímuverðlaunin og Íslensku tónlistarverðlaunin 2014 í flokki sígildrar- og samtímatónlistar og einnig Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir túlkun sína á hlutverki Lenskys í uppfærslu Íslensku óperunnar á Evgení Onegin haustið 2016.