![Sumarbústaður og bíll brunnu í Tungunum Sumarbústaður og bíll brunnu í Tungunum](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/brunavarnir1.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Um klukkan hálf fimm í gær barst tilkynning til lögreglunnar á Suðurlandi um að eldur logaði í sumarbústað í Tungunum. Samkvæmt tilkynningunni logaði glatt í bústaðnum auk þess sem eldurinn hafði borist í bifreið sem stóð þar við. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var bústaðurinn alelda og litlu hægt að bjarga. Brann bústaðurinn til kaldra kola ásamt bifreiðinni sem er ónýt eftir. Enginn var í eða við bústaðinn þegar eldurinn kviknaði. Rannsókn lögreglu á vettvangi er lokið en eldsupptök eru enn óljós.