Fyrstu íbúðirnar í nýju fjölbýlishúsi við Austurveg 37–39 á Selfossi voru afhentar nýjum eigendum þriðjudaginn 10. júlí sl. Íbúðirnar hafa verið í byggingu síðan í maí í vor. Það voru glaðbeittir eigendur fyrstu 10 íbúðanna sem tóku á móti lyklunum úr hendi Pálma Pálssonar framkvæmdastjóra hjá Pálmatré ehf. Framkvæmdaaðili verksins er Fagridalur ehf. en Pálmatré ehf. er byggingaraðili. Fyrirtækið sér um að byggja íbúðirnar en þær eru ætlaðar fyrir 50 ára og eldri. Í fyrsta áfanga voru byggðar tólf íbúðir. Verið er að byggja bílakjallara með 18 stæðum. Alls er gert ráð fyrir 35 íbúðum í þremur húsum.