Í morgun var dregið í fyrstu umferð EHF-bikarsins karla í handbolta í höfuðstöðvum evrópska handknattleikssambandsins. Tvö íslensk lið voru í pottinum, Selfoss og FH. ÍBV er þriðja íslenska liðið sem tekur þátt í Evrópukeppni en þeir sitja hjá í fyrstu umferð.
Selfoss dróst gegn Klaipeda Dragunas frá Litháen í fyrstu umferð. FH dróst gegn RK Dubrava frá Króatíu. Komist Selfoss áfram í aðra umferði mæta þeir Ribnica frá Slóveníu. Komist FH-ingar áfram mæta þeir Benfica frá Portúgal. ÍBV mæta franska liðinu Pauc og koma inn í keppnina í annarri umferð.
Fyrri leikur Selfoss er heimaleikur á Selfossi 1.–2. september og seinni leikurinn er útileikur 8.–9. september. FH byrjar á útileik. Fyrri leikur ÍBV fer fram í Eyjum 6.–7. október og síðari leikurinn í Frakklandi 13.–14. október.