Leikfélagið Borg frumsýnir gamanleikinn Svefnlausi brúðguminn í félagsheimilinu Borg í Grímsnesi í kvöld föstudaginn 17. febrúar kl 20:00. Leikritið er eftir þá Arnold og Back í þýðingu Sverris Haraldssonar. Leikstjóri er Magnús J. Magnússon. Leikritið fjallar um Emil Borgfjörð, vel stæðan heildsala, sem rekur fóðurfyrirtæki. Hann lendir í vandræðum með nýja tengdasyni sem eru að koma inn í fjölskylduna.