Þór Þorlákshöfn hefur gengið frá samningum við þrjá erlenda leikmenn fyrir næstu leiktíð í Dominos deild karla, Króatann Nick Tomsick, Bandaríkjamanninn Joe Tagatelli og Litháann Gintautas Matulis.
Nick Tomsick hefur spilað í Króatíu, Bretlandi, Svíþjóð og Þýskalandi síðustu ár. Hann var í Fort Lewis háskólanum í Bandaríkjunum. Hann getur spilað báðar bakvarðarstöðurnar og er 1,86 cm.
Joe Tagarelli er miðherji og lék á Englandi á síðustu leiktíð. Hann
var annar frákastahæstur í deildinni með 10 fráköst að meðaltali í leik og 18,6 stig að meðaltali í leik. Joe er 1,97 cm að hæð og spilaði með Quincy háskólanum.
Gintautas hefur allan sinn feril leikið í Litháen þar sem hann lék m.a. gegn liði Zalgiris Kaunas sem komst í undanúrslit Euroleague á nýliðinni leiktíð. Hann lék með Nevezis þar sem hann var með 7,2 stig að meðaltali á rúmum tuttugu mínútum. Þá lék Gintautas einnig í FIBA Europe Cup.
Frá síðustu leiktíð hafa leikmennirnir Snorri Hrafnkelsson og Ólafur Helgi Jónsson yfirgefið lið Þórs. Ragnar Örn Bragason er snúinn aftur og þá hefur Baldur Þór Ragnarsson tekið við þjálfun liðsins.