Umhverfisverðlaun Flóahrepps voru afhent á þjóðhátíðardaginn á útivistarsvæði Umf. Þjótanda við Einbúa en þar fóru hátíðarhöldin fram. Í ár fengu verðlaunin Elfa Kristinsdóttur og Jakob Viðar Ófeigsson, Rimum 6, fyrir lögbýli og Ölvisholt brugghús, fyrir skemmtilega útfærslu á nýrri gestastofu. Árni Eiríksson, oddviti Flóahrepps, veitti verðlaunin á hátíðinni, sem atvinnu- og umhverfisnefnd Flóahrepps tilnefndi.