Máni Snær Benediktsson var útnefndur íþróttamaður Hrunamannahrepps þann 17. júní sl. Karl Gunnlaugsson afhenti honum eignarbikar og farandbikar af því tilefni.
Í umsögn segir að Máni Snær sé mjög efnilegur og fjölhæfur íþróttamaður í stöðugri framför. Árangur hans á frjálsíþróttavellinum á síðasta ári var mjög góður og afrek hans í hástökki og langhlaupum standa þar upp úr. Máni Snær vann fjóra Íslandsmeistaratitla í flokki 15 ára pilta á árinu 2017. Hann varð Íslandsmeistari í hástökki innanhúss þegar hann stökk 1,75 m, Íslandsmeistari í 3000 m hlaupi utanhúss er hann hljóp á tímanum 9:55,49 mín og Íslandsmeistari í boðhlaupi með sveitum HSK, bæði innan- og utanhúss. Í 3000 m hlaupinu á Meistaramótinu setti hann nýtt HSK-met í flokki 15 ára. Á árinu setti Máni einnig HSK-met með boðhlaupsveit sinni. Auk þessa hefur Máni Snær verið valinn í Úrvalshóp FRÍ fyrir árangur sinn í 3000 m hlaupi. Ekki vantaði hann mikið upp á lágmörkin í fleiri greinum því í hástökki vantaði hann einungis 1 cm upp á og 20 hundruðustu út sekúntu til að ná lágmarkinu í 200 m hlaupi. Við þetta má bæta að Máni Snær stundar knattpyrnu af krafti með Umf. Selfoss og körfuknattleik með Umf. Hrunamanna.
Íþróttamenn í Hrunamannahreppi sem unnið hafa Íslandsmeistaratitla og þeir sem valdir hafa verið í landslið á árinu 2017, voru einnig heiðraðir og fengu afhenta verðlaunaplatta því til staðfestingar. Eru það eftirtaldir:
Lið UMFH/Laugdælir í meistaraflokki karla, Íslandsmeistarar í körfuknattleik í 2. deild.
Máni Snær Benediktsson, Íslandsmeistari í frjálsum íþróttum.
Una Bóel Jónsdóttir, Íslandsmeistari í frjálsum íþróttum.
Ingibjörg Bára Pálsdóttir, Íslandsmeistari í frjálsum íþróttum.
Þórdís Jóna Kristjánsdóttir, valin í landslið Íslands í körfuknattleik U-18.
Ragnheiður Björk Einarsdóttir, valin í landslið Íslands í körfuknattleik U-18.
Perla María Karlsdóttir, valin í landslið Íslands í körfuknattleik U-15.