Á fimmtudag í síðustu viku var undirritaður samningur til sex ára milli Smyril Line, Þorlákshafnar og Sveitarfélagsins Ölfuss um hafnaraðstöðu fyrir Smyril Line í Þorlákshöfn vegna vöruflutningastarfsemi.
Rúmt ár er síðan Mykines, vöruflutningaferja Smyril Line Cargo, hóf að sigla milli Rotterdam og Þorlákshafnar. Hefur þetta verkefni haft verulega jákvæð áhrif á samfélagið í Ölfusi á þessu fyrsta ári starfseminnar. Á heimasíðu Ölfuss segir að þessi nýi samningur eigi án efa eftir að efla verkefnið enn frekar, samfélaginu og öllum samningsaðilum til heilla.