Síðastliðinn föstudag var tekin skóflustunga að nýrri félagsmiðstöð og dagdvöl eldri borgara við Grænumörk á Selfossi. Auk nýju tengibyggingarinnar verða byggðar 28 íbúðir sem verða seldar á almennum markaði.
Austurbær fasteignafélag ehf. stendur að byggingunum í samvinnu við Jáverk ehf. Sveitarfélagið hefur fest kaup á húsnæðinu undir félagsmiðstöðina og dagdvölin en starfsemin verður á tveimur hæðum og er um 960 fermetrar að stærð. Kaupverð er 492,7 milljónir króna.
Að sögn Leós Árnasonar hjá Austurbæ fasteignafélagi verða byggðar í fyrsta áfanga 28 íbúðir sem verða seldar á almennum markaði. Þetta verða íbúðir frá 85 fermetrum að stærð og upp 130 fermetra. Hverri íbúð fylgir bílastæði í bílakjallara. Íbúðirnar munu fara í sölu í lok þessa árs.
Framkvæmdir hófust núna í vikunni, en áætlað er að félagsmiðstöðin verði tilbúin í maí á næsta ári. Íbúðirnar verða síðan afhentar í nóvember 2018.
Þetta er fyrsti áfangi í framkvæmdum á lóðinni Austurvegur 51–59. Framkvæmdir við seinni áfanga hefjast á næsta ári en í þeim áfanga verða byggðar 25–30 íbúðir.
![Hér má sjá hvernig tengibyggingin og nýju íbúðirnar koma til með að líta út.](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/02/graenamork2.jpg?resize=696%2C392&ssl=1)