Út er komin hjá bókaútgáfunni Sæmundi bókin Fornar ferðaleiðir í Vestur-Skaftafellssýslu um aldamótin 1900 eftir er Skaftfellinginn Veru Roth. Um er að ræða vandað og glæsilegt ritverk um merkan menningararf.
Fjallað er um þetta víðlenda og strjálbýla hérað og það líf sem þar var lifað fyrir liðlega hundrað árum. Samgöngum og ferðalögum eru gerð ítarleg skil en einnig er í bókinni að finna margvíslegan fróðleik um lífshætti Skaftfellinga fyrrum sem voru á margan hátt óvenjulegir á landi hér vegna sérstakra og erfiðra aðstæðna.
Bókina prýðir mikill fjöldi gamalla ljósmynda og kort sem sýna hinar fornu leiðir. Heimildir eru sóttar víða að, í bækur og ritaðar heimildir en einnig viðtöl við aldraða og margfróða Skaftfellinga. Ritið er gefið út í tilefni af 20 ára afmæli Kirkjubæjarstofu í Skaftárhreppi.