![Strokufanga af Sogni leitað Strokufanga af Sogni leitað](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/logregla.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Lögreglan á Suðurnesjum hefur lýst eftir Sindra Þór Stefánssyni en hann strauk frá fangelsinu að Sogni í nótt. Sindri hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 2. febrúar vegna rannsóknar lögreglunnar á umfangsmiklum þjófnaði á tölvubúnaði. Þetta kemur m.a. fram í frétt á mbl.is.
Þar segir ennfremur: „Í fréttatilkynningu frá lögreglunni segir: Sindri er íþróttamannslega vaxinn með skolleitt hár, skegghýung og 192 cm á hæð. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum strauk Sindri frá Sogni klukkan 1 í nótt.
Allir þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Sindra frá því kl. 01:00 í nótt er beðnir um að koma þeim upplýsingum á framfæri við lögregluna.“