Gunnar Þór Gunnarsson áhugaljósmyndari á Selfossi sýnir um þessar mundir ljósmyndir í húsnæði Tryggingamiðstöðvarinnar að Austurvegi 6.
Gunnar sem er stofnfélagi í ljósmyndaklúbbnum Bliki á Selfossi sýnir áhugaverðar og skemmtilegar myndir teknar víða um land af fólki, dýrum og landslagi.
Sýningin er opin á opnunartíma TM frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga út mars. Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu og á góðu verði. Allir eru velkomnir á sýninguna.