Ný og glæsileg Krambúð var opnuð á Tryggvagötu 40 (Horninu) á Selfossi síðastliðinn föstudag, en þar var áður Samkaup Úrval verslun. Krambúðin býður upp á það allra nauðsynlegasta í matvöru og leggur áherslu á að leysa þarfir viðskiptavina sem eru á hraðferð. Lagt er upp með að viðskiptavinir geti fengið þær vörur sem þarf til heimilisins hverju sinni á hagstæðara verði en áður hefur sést í sambærilegum verslunum hér á landi. Boðið er upp á bakað á staðnum, tilbúna rétti, samlokur, salöt og „take-away“ kaffi, svo eitthvað sé nefnt.
Í tilefni opnunarinnar voru ýmis tilboð og standa þau til 21. mars. Krambúðin er opin virka daga kl. 7:30–23:30 og frá 8:00 á laugardögum og 9:00 á sunnudögum til kl. 23:30.
Ný Krambúð opnuð á Selfossi
![krambud_selfossi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/03/krambud_selfossi.jpg?resize=1000%2C667&ssl=1)