![Viðurkenningar fyrir góðan árangur í framhaldsnámi Viðurkenningar fyrir góðan árangur í framhaldsnámi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/03/namsarangur2.jpg?fit=768%2C532&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/03/namsarangur1.jpg?resize=204%2C300&ssl=1)
Tveir nemendur úr Fjölbrautaskóla Suðurlands, sem nú stunda nám í lögræði við Háskólann í Reykjavík, fengu nú um áramótin sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur. Það eru þau Bjarki Már Magnússon og Esther Ýr Óskarsdóttir. Þau komust bæði á svokallaðan forsetalista og fá niðurfelld skólagjöld fyrir eina önn í skólanum. Þess ber að geta að Esther Ýr sem er á 2. ári sínu í lögfræði komst einnig á forsetalista á sínu fyrsta ári.