![Afhenti Tryggvaskála gamlan hermannahjálm Afhenti Tryggvaskála gamlan hermannahjálm](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/02/hermannahjalmur1.jpg?fit=240%2C188&ssl=1)
Sigurjón Erlingsson afhenti sl. sunnudag Tómasi Þóroddssyni veitingamanni í Tryggvaskála gamlan breskan hermannahjálm til varðveislu sem honum hafði verið falið að koma í Tryggvaskála. Með hjálminum fylgdi eftirfarandi texti:
Þessi breski hermannahjálmur barst austur að Hvoli í Fljótshverfi úr hemannabragga í Reykjavík eftir stríðslokin 1945. Jón Sigurðsson bóndi þar geymdi lengi í honum skeifur í smiðju sinni. Hannes sonur Jóns gaf Tryggvaskála hjálminn til varðveislu 2005. – Um 30 hermannabraggar voru beggja megin við Ölfusárbrú á stríðsárunum og hermenn komu mikið í Tryggvaskála. Haustið 1940 tók breski herinn á leigu um tíma stóra salinn í Tryggvaskála og 3 herbergi uppi meðan þeir voru að reisa fyrstu braggana. (Sjá Sögu Selfoss II).
-S.Erl.