![Tvö létust í árekstri á Lyngdalsheiðarvegi Tvö létust í árekstri á Lyngdalsheiðarvegi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/10/kertaljos_andlat.jpg?fit=768%2C432&ssl=1)
Erlendir ferðamenn, karl og kona, létust í árekstri vörubifreiðar og fólksbifreiðar á Lyngdalsheiðarvegi í dag. Veginum var lokað á meðan viðbragðsaðilar unnu á vettvangi en hann hefur nú verið opnaður. Búast má við umferðartöfum fram eftir kvöldi meðan vörubifreiðin er fjarlægð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Rannsókn málsins er í höndum rannsóknardeildar lögreglunnar á Suðurlandi og nýtur hún aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Teknar hafa verið skýrslur af vitnum og af ökumanni vörubifreiðarinnar. Hann, ásamt farþega sem einnig var í bílnum, voru fluttir til aðhlynningar á sjúkrahúsi en meiðsl þeirra eru ekki alvarleg.
Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um rannsóknina að sinni.