![Leshringur á Bókasafninu á Selfossi Leshringur á Bókasafninu á Selfossi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/03/steinunn_sig2.jpg?fit=768%2C569&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/03/steinunn_sig1.jpg?resize=206%2C300&ssl=1)
Leshringur Bókasafnsins á Selfossi hittist annan fimmtudag í hverjum mánuði í lessal safnsins kl. 17:15 og spjallar um bók eða höfund sem hefur þótt áhugaverður. Núna varð Heiðubókin hennar Steinunnar Sigurðardóttur, Heiða fjalldalabóndi fyrir valinu, og á fimmtudag verður leshringur með óhefðbundnum sniði en þá fáum kemur Steinunn í safnið og spjallar um bókina. Allir eru velkomnir bæði á þennan fund sérstaklega þar sem ekki gefst oft tækifæri til að spjalla við höfunda, og eins til að vera með í klúbbnum.
Til stendur að stofna fljótlega leshring fyrir 9–12 ára krakka og verður það auglýst sérstaklega þegar að því kemur. Fyrir yngstu börnin hefur Kiddý lesið sögur á fimmtudagsmorgnum en sá tími verður nú færður til 17:30 og Pétur og úlfurinn er bókin sem verður lesin næsta fimmtudag. Sjáumst á bókasafni okkar allra.