![Prjónakvöld í bókasafninu á mánudaginn Prjónakvöld í bókasafninu á mánudaginn](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/03/prjonakvold.jpg?fit=430%2C287&ssl=1)
Um daginn prófuðu starfsmenn á Bókasafni Árborgar á Selfossi að hafa prjónakvöld milli kl 20 og 22 á mánudagskvöldi. Það lukkaðist ljómandi vel og úr varð notaleg kvöldstund yfir kaffi, spjalli og prjónum. Nú er hugmyndin að komast að því hvort raunhæft sé að bjóða upp á slík kvöld einu sinni í mánuði og byrja strax í mars. Fyrsta kvöldið verður 5. mars frá kl. 20:00 til kl. 22:00. Allir eru velkomnir, prjónahópar jafnt sem einstaklingar.