Bæjarráð Ölfuss samþykkti á fundi sínum nýlega að framlengja 33,3% afslátt af gatnagerðargjöldum á íbúðarhúsalóðum í Búðarhverfi í Þorlákshöfn út maí 2018. Heildarverð með afslætti fyrir einbýlishúsalóð er um 2,8 milljónir króna. Afslátturinn var í gildi allt árið 2017.