![Smáskjálftar fundust við Selfoss í morgun Smáskjálftar fundust við Selfoss í morgun](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/02/skjalftar.jpg?fit=540%2C317&ssl=1)
Lítil jarðskjálftahrina hófst í morgun, nánar tiltekið kl. 07:48, um 6 km norðaustur af Selfossi. Stærsti jarðskjálftinn var kl. 08:10 og var hann 2,8 að stærð. Kl. 08:03 varð skjálfti 2,1 að stærð. Flestir skjálftar hafa verið undir 0,6 að stærð. Nokkrir smáskjálftar hafa áfram verið að mælast í jarðskjálftakerfinu. Stærsti skjálftinn fannst á Selfossi.