![Söngkeppni Árborgar haldin í annað sinn Söngkeppni Árborgar haldin í annað sinn](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/02/songkeppni2.jpg?fit=768%2C574&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/02/songkeppni1.jpg?resize=225%2C300&ssl=1)
Söngkeppni Árborgar verður haldin í annað sinn á Hótel Selfossi föstudaginn 9. mars næstkomandi. Um er að ræða keppni milli fyrirtækja þar sem keppt er um besta atriðið og besta stuðninginn.
„Við fórum af stað með þessa keppni í fyrra og komust færri að en vildu. Alls tóku tíu fyrirtæki þátt og seldust allir miðar í forsölu,“ sagði Sigríður Ósk Harðardóttir framkvæmdastjóri Söngkeppni Árborgar. „Í ár verður keppnin með svipuðu sniði og gerum við ráð fyrir að stútfylla hótelið eins og í fyrra því nú þegar eru nokkur fyrirtæki búin að skrá sig til þátttöku.“
Keppt er um glæsilegan farandgrip en handhafar hans eru Selfossveitur sem sigruðu í fyrra með glæsilegum flutningi. Allur ágóði af keppninni í fyrra fór til Dagdvalar Vinaminnis og Árbliks.