Síðastliðinn föstudag hófst svokölluð tilnefning í kjöri til vígslubiskups í Skálholti og stendur hún til hádegis miðvikudaginn 7. febrúar. Þeir þrír einstaklingar sem flestar tinefningar fá verða síðan í kjöri til vígslubiskups
Kjörstjórn þjóðkirkjunnar ógilti á síðasta ári kosningu til vígslubiskups þar sem í ljós kom að val kjörmanna í a.m.k. 41 af 164 sóknum í Skálholtsudæmi var ábótavant.
Fjórir prestar sækast eftir tilnefningum, þeir sömu og við fyrra kjörið, það eru Axel Árnason Njarðvík, Eiríkur Jóhannsson, Kristján Björnsson og Jón Helgi Þórarinsson.
Kosning til vígslubiskups í Skálholti fer síðan fram dagana 9. mars til 21. mars næstkomandi.