![Ók utan í brúarstólpa á Ölfusárbrú Ók utan í brúarstólpa á Ölfusárbrú](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/logregla3-4.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Bifreið ók utan í brúarstólpa á Ölfusárbrú á áttunda tímanum í gærkvöldi með þeim afleiðingum að þrír bílar lentu saman. Ekki urðu slys á fólki en umferð stöðvaðist í um eina klukkustund meðan lögreglan rannsakaði vettvang og fjarlægði bílana. Slæmt skyggni og þæfingur var þegar slysið varð.
Ekki urðu slys á fólki en skv. mbl.is er ökumaður bílsins sem ók á brúarstólpann og olli slysinu grunaður um ölvun eða fíkniefnaneyslu við akstur.