![Líkfundur við Sandfell í Öræfum Líkfundur við Sandfell í Öræfum](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/logregla3-4.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Björgunarsveitarmenn í Öræfum fundu, um hádegisbil, látinn mann við Sandfell í Öræfum. Björgunarsveitir voru kallaðar til þegar farið var að grenslast fyrir um ástæður þess að bifreið hafði staðið mannlaus í einhvern ótiltekin tíma á bifreiðastæði skammt frá Sandfelli. Um er að ræða bílaleigubifreið í útleigu til erlends ferðamanns. Málið er í rannsókn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi.
Á heimasíðu lögreglunnar kemur fram að ekki sé unnt að veita nánari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Frétt af facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.