Leikfélag Hveragerðis frumsýnir leikritið „Glanni Glæpur í Latabæ“, eftir Magnús Scheving og Sigurð Sigurjónsson, í Leikhúsinu Austurmörk 23, laugardaginn 20. janúar nk. kl. 14. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Söngtextar eru eftir Karl Ágúst Úlfsson og tónlistina samdi Máni Svavarsson. Önnur sýning verður sunnudaginn 21. janúar kl. 14. Leikritið verður síðan sýnt næstu tvær helgar þar á eftir þ.e. laugardaga og sunnudaga og hefjast allar sýningar kl. 14.