![Marín Laufey efst á styrkleikalista glímukvenna Marín Laufey efst á styrkleikalista glímukvenna](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/01/glima_bikarmeistarar2.jpg?fit=768%2C493&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/01/glima_bikarmeistarar1.jpg?resize=252%2C300&ssl=1)
Glímusamband Íslands hefur birt styrkleikalista GLÍ og tekur hann mið af árangri keppenda á mótum á landsvísu.
Marín Laufey Davíðsdóttir úr Umf. Þjótanda er í efsta sæti listans í kvennaflokki með 86,7 stig og Jana Lind Ellertsdóttir úr Íþróttafélaginu Garpi er í öðru sæti með 70 stig. Þetta er í fyrsta skipti sem HSK á tvo efstu keppendurna á kvennalistanum.
Í karlaflokki er Ásmundur Hálfdán Ásmundsson úr UÍA efstur með stuðulinn 80. Einn keppandi af sambandssvæði HSK er á meðal efstu manna á listanum, en Jón Gunnþór Þorsteinsson úr Umf. Þjótanda er í fjórða sæti með 57,5 stig. Heildarlistann má sjá á vefnum www.glima.is.