Lúðrasveit Þorlákshafnar heldur nýárstónleika í ráðhúsinu í Þorlákshöfn á þrettándanum þann 6. janúar kl. 17. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá, allt frá hefðbundnum vínartónum yfir í jazz, popp og rokk. Gullbarkinn Þór Breiðfjörð mun syngja með sveitinni og Sigríður Fjóla sirkusdýr mun sýna töfrandi sirkuslistir við undirleik sveitarinnar.