![Sigfús Kristinsson sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Sigfús Kristinsson sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/01/sigfus_kristins2.jpg?fit=768%2C524&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/01/sigfus_kristins1.jpg?resize=199%2C300&ssl=1)
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sæmdi tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 1. janúar sl. Á meðal þeirra var Sunnlendingurinn Sigfús Kristinsson, trésmiður á Selfossi. Sigfús var sæmdur riddarakrossi fyrir framlag til atvinnulífs og iðn-mennta í heimabyggð.
Sigfús fæddist í Litlu-Sandvík 1932 og hóf störf í trésmíði árið 1950. Hann starfrækti frá 1961 byggingafyrirtækið Árborg ehf. Sigfús var mikilvirkur byggingaverktaki á Selfossi um árabil og byggði fjölda merkra bygginga þar og víðar, m.a. Vöruhús KÁ (Kjarnann), Fjölbrautaskóla Suðurlands, Íþróttahúsið á Laugarvatni og Sjúkrahús Suðurlands, svo fátt eitt sé nefnt.