-4.1 C
Selfoss
Home Fréttir Alvarleg staða í þjónustu við eldra fólk í Árnessýslu

Alvarleg staða í þjónustu við eldra fólk í Árnessýslu

0
Alvarleg staða í þjónustu við eldra fólk í Árnessýslu
Unnur Þormóðsdóttir, hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar á Selfossi, formaður Færni- og heilsumatsnefndar heilbrigðisumdæmis Suðurlands.

Í kjölfar lokunar hjúkrunarrýma á Kumbaravogi og Blesastöðum í Árnessýslu hefur skapast ófremdarástand í málefnum þeirra sem á slíkum rýmum þurfa að halda. Þegar rýmum fækkar gefur það auga leið að þjónusta við þessa einstaklinga verður að eflast og aukast til muna og er það heilbrigðisráðuneytis og fjármálaráðuneytis að bregðast tafarlaust við. Heimahjúkrun þarf að auka mikið, auk þess sem þetta ástand hefur veruleg áhrif á sjúkradeild HSU á Selfossi. Þar eru 18 rými sem eru ætluð öllum íbúum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og V-Skaftavellssýslu. Nú eru þau að mestu teppt af einstaklingum sem bíða eftir að komast inn í hjúkrunarrými og geta alls ekki beðið heima.

Þegar ákvörðun um lokun var tekin af ráðuneyti mátti það ljóst vera að ástandið yrði erfitt og því þyrfti að flýta byggingu nýs heimilis, það hefur þó tekið mikinn tíma að hefjast handa og mun heimilið aldrei verða tilbúið fyrr en árið 2020. Þangað til verður að hjálpa öllu því fólki sem er í mikilli þörf fyrir hjúkrunarrými.

Heimahjúkrun hefur þyngst stöðugt síðan heimilum var lokað og er nú svo komið að heilsugæslan á Selfossi annar ekki þeirri þjónustuþörf sem á hennar svæði er. Rekin er kvöld- og helgarþjónusta, fyrir utan venjubundna dagþjónustu, með einum sjúkraliða sem fer um Hveragerði, Ölfus, Árborg og Flóa. Hjúkrunarfræðingar sinna einnig kvöld- og helgarþjónustu á sama svæði. Enn verður að bæta í þjónustuna en ekki er gert ráð fyrir fjármunum í fjárlögum sem munu dekka þá aukningu.

Hafa ber í huga að við lokun rýma þá er ríkið að spara peninga í daggjöldum sem eðlilegt væri að nota á svæðinu til að sinna því fólki sem annars væri komið inn í hjúkrunarrými. Það er á engan hátt boðlegt að neyðarlokun skapi sparnað fyrir ríkið á kostnað íbúa.

Er það ósk mín að fjármagn verði tryggt tafarlaust til að við getum sinnt fólki heima þetta er neyðarástand sem bregðast verður við strax.

Staðreyndir: Á Suðurlandi eru 242 hjúkrunarrými á 10 heimilum en þau voru 260 á 12 heimilum þar til fyrir um ári síðan, daggjöld fyrir 18 rýmum eru ónýtt á svæðinu en verið getur að peningarnir fyrir þeim séu nýttir annarsstaðar á landinu og er það óásættanlegt.

Af þeim 242 hjúkrunarrýmum í landshlutanum eru einungis 5 þeirra skilgreind sem hvíldarrými.

Á biðlista eftir hjúkrunarrýmum í Árnessýslu þann 16 desember 2017 eru 23 einstaklingar og 23 einstaklingar bíða eftir hvíldarrýmum.

Í Árnessýslu eru 16.467 íbúar skv. þjóðskrá, hjúkrunarrými eru 90 auk þriggja hvíldarrýma. Af þeim 18 sjúkrarýmum sem eru fyrir Árnessýslu, Rangárvallasýslu og V-Skaftafellssýslu voru nú á tímabili 12 teppt af einstaklingum sem áttu mat í hjúkrunarrými, það eru tæp 67% rýmanna.

Unnur Þormóðsdóttir, hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar á Selfossi, formaður Færni- og heilsumatsnefndar heilbrigðisumdæmis Suðurlands.