Lyftingadeild Ungmennafélags Selfoss var endurvakin á fundi í félagsheimilinu Tíbrá þriðjudaginn 24. janúar sl. Á fundinum var kosin ný fimm manna stjórn deildarinnar. Hana skipa Árni Steinarsson formaður, Örvar Arnarson gjaldkeri, Ólafur Oddur Sigurðsson ritari og meðstjórnendur Adam Þorsteinsson og Gísli Rafn Gylfason.
Mikill hugur er í stjórninni og er þegar farið að huga að þátttöku keppenda í löggiltum mótum í ólympískum lyftingum og kraftlyftingum á vegum Lyftingasambands Íslands og Kraftlyftingasambands Íslands.
Æfingaaðstaða lyftingadeildar Umf. Selfoss verður til húsa að Eyrarvegi 33. Deildin stendur fyrir æfingum í ólympískum lyftingum alla miðvikudaga kl. 06–07, kl. 16:30–17:30 og kl. 18:30–19:30 og kraftlyftingum þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30–18:30. Skráning í lyftingadeildina fer fram í afgreiðslu CrossFit Selfoss og öllum frekari fyrirspurnum er svarað á netfanginu crossfitselfoss@crossfitselfoss.is.