Kvenfélögin í Flóahreppi gáfu í haust leikskólanum Krakkaborg 130.000 kr. til kaupa á leikföngum og bókum. Peningarnir voru afrakstur sauma á fjölnotainnkaupapokum fyrir Flóahrepp. Guðrún Elísa Gunnarsdóttir formaður kvenfélags Gaulverjabæjarhrepps, Ingibjörg Einarsdóttir formaður kvenfélags Hraungerðishrepps, Sólveig Þórðardóttir formaður kvenfélags Villingagoltshrepps, afhentu Guðbjörgu Hólm leikskólastjóra gjafabréfið.
Kvenfélögin í Flóanum styrktu Krakkakot
![krakkakot Frá afhendingu gjafabréfs til leikskólans Krakkaborgar í Flóahreppi.](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/krakkakot.jpg?resize=1000%2C687&ssl=1)