![Ljóðadagskrá og sýningaropnun í bókasafninu í Hveragerði Ljóðadagskrá og sýningaropnun í bókasafninu í Hveragerði](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/12/petur_petursson2.jpg?fit=480%2C340&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/12/petur_petursson.jpg?resize=184%2C300&ssl=1)
Laugardaginn 9. desember nk. kl. 13 verður ljóðadagskrá og sýningaropnun á Bókasafninu í Hveragerði. Þá les dr. Pétur Pétursson úr ljóðaþýðingum sínum og opnar jafnframt myndlistarsýningu. Einnig les Pjetur Hafstein Lárusson úr þýðingum sínum á ljóðum sænska skáldsins Gunnars Ekelöf.
Á allra næstu dögum kemur út hjá bókaútgáfunni Sæmundi á Selfossi ljóðabókin Steinar og stjörnur eftir Paul Murray, guðfræðiprófessor, írskan dóminikanamunk og ljóðskáld, í þýðingu dr. Péturs Péturssonar. Pétur hefur einnig myndskreytt bókina.
Pétur Pétursson er fæddur 1950. Hann er prófessor í kennimannlegri guðfræði við Háskóla Íslands. Pétur hefur haldið nokkrar málverkasýningar en er að mestu sjálflærður í myndlist. Myndirnar á sýningunni eru að uppistöðu myndskreytingar bókarinnar, ljóðrænar vatnslita- og blekmyndir.
Verið velkomin á bókasafnið á laugardaginn til að njóta notalegrar stundar. Boðið verður upp á hressingu. Sýningin verður síðan opin um leið og safnið, mánudaga kl. 11-18:30, þriðjudaga-föstudaga kl. 13-18:30 og laugardaga kl. 11-14 og stendur fram í janúar.
Þriðjudaginn 12. desember kl. 20 munu svo bæjarstjórnarmenn lesa úr nýútkomnum bókum að eigin vali.