Selfyssingurinn Egill Blöndal, tvöfaldur Íslandsmeistari í júdó árið 2017, er á leið á sterkasta júdómót í heiminum í bardagaíþróttum Tokyo Grand Slam 2017, en mótið fer fram í Tokyo um komandi helgi. Egill keppir á sunnudag, 3. desember, í -90 kg þyngdarflokki.
Eftir helgina mun Egill taka þártt í æfingabúðum með sterkustu bardagamönnum heims, Japansmeisturum, Ólympíumeisturum og Heimsmeisturum.
Með Agli til Tokyo fer Garðar Skaptason þjálfari hjá júdódeild Umf. Selfoss.
Hægt er að fylgjast með mótinu í beinni útsendingu í gengum tengil á heimasíðu Júdósambands Íslands www.jsi.is og www.ijf.org.