Björgunarsveit var kölluð út um þrjúleytið í dag eftir að kona sem hafði verið á gangi í Ingólfsfjalli hrasaði.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig send á vettvang og flutti hún konuna á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Þetta kemur fram á mbl.is (sjá mbl.is)
Þar segir enn fremur, að sögn lögreglunnar á Suðurlandi, að konan hafi dottið ofarlega í fjallinu og að björgunarsveit hafi flutt hana niður fjallið. Konan mun ekki vera alvarlega slösuð.
Kona flutt með þyrlu eftir að hafa hrasað í Ingólfsfjalli
![landsbjorg1](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/03/landsbjorg1.jpg?resize=179%2C134&ssl=1)