![Harður árekstur á Biskupstungnabraut Harður árekstur á Biskupstungnabraut](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/logregla3-4.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Harður árekstur varð laust fyrir klukkan þrjú í dag á Biskupstungnabraut við afleggjarann að Búrfellsvegi og var Biskupstungnabrautin lokuð um tíma. Vegfarendum var bent á að aka um Þingvallaveg og Laugarvatnsveg.
Á mbl.is kemur fram að sjö voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir slysið. Fram kemur að einn hafi verið nokkuð slasaður, að sögn lögreglunnar á Suðurlandi, sem sagði að fólkið væri í mismunandi ástandi.
Tveir jeppar lentu í árekstri við afleggjarann. Ökumaður þriðja bílsins, sem var einn í bílnum, kom þá aðvífandi en tókst að aka út af til að afstýra stærra slysi.