Undirritaður hefur verið samningur milli Foreldrafélags leikskólanna Undralands og Óskalands og Hveragerðisbæjar. Samningnum er ætlað að efla samstarf bæjaryfirvalda og Foreldrafélags leikskólanna og tryggja öflugt æskulýðs- og forvarnarstarf fyrir börn samkvæmt stefnu bæjaryfirvalda þar um.
Í samningnum er gert ráð fyrir að félagið skipuleggi vor/sumarhátíð, útskriftarferð 5 ára barna, myndatöku ár hvert og aðra viðburði í samráði við leikskólastjóra Undralands og Óskalands. Eitt stærsta verkefni félagsins er að árlega hefur félagið gefið öllum börnum á leikskólum bæjarins bókagjöf á degi íslenskrar tungu.
Hlutverk bæjarins er að sjá um innheimtu félagsgjalda félaginu að kostnaðarlausu en auk þess greiðir bæjarfélagið félaginu rúmlega 800 þúsund á samningstímabilinu.