![Ævintýri Stebba eftir Garðar í Hellisholtum Ævintýri Stebba eftir Garðar í Hellisholtum](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/11/aevintyri_stebba1.jpg?fit=768%2C1056&ssl=1)
Út er komin hjá bókaútgáfunni Sæmundi bókin Ævintýri Stebba eftir Garðar Olgeirsson. Hér eru á ferðinni spennandi barnasögur úr sveitinni.
Í bókinni birtist okkur forn menningarheimur; þjóðtrúin með álfum, nátttröllum, draugum og ráðugri gamalli kerlingu. Stebbi, sem er tólf ára, ratar í ótrúleg ævintýri en tekst með hjálp vina sinna að ráða vel fram úr erfiðum aðstæðum.
Höfundur er Garðar Olgeirsson í Hellisholtum í Hrunamannahreppi og
er þetta fyrsta bók höfundar. Sögurnar eru myndskreyttar af Ellisif Malmo Bjarnadóttur listakonu í Laugarási.