Fóðurblandan og samstarfsaðilar standa fyrir fjölskyldu- og landbúnarðarsýningunni „Hey Bóndi 2017“ á Hvolsvelli á morgun laugardaginn 4. nóvember. Á sýningunni verða innlendir og erlendir sýnendur.
Fjöldi áhugaverðra fyrirlestra verður, vörur á tilboði, smakk á mörgu góðgæti, sala beint frá býli og prufukeyrsla á bílum og traktorum. Þá verður sýning frá Latabæ með Sollu stirðu og Sigga sæta. Einnig verða Guðni Ágústsson og Jóhannes Kristjánsson með gamanmál.