Fimmtudaginn 26. október síðastliðinn, á menningarviðburðinum „Selfosstónar“ í Selfosskirkju, fengu þeir Jón Ingi Sigurmundsson, Ásgeir Sigurðsson og Hjörtur Þórarinsson samfélagsviðurkenningar frá Sveitarfélaginu Árborg. Viðurkenningarnar fengu þeir fyrir óeigingjarnt og ómetanlegt framlag til samfélagsins en þeir hafa hver með sínum hætti komið að því mikla tónlistarstarfi sem hefur verið í héraðinu í gegnum tíðina. Kjartan Björnsson, formaður íþrótta- og menningarnefndar Árborgar afhenti þeim viðurkenningar og blómvönd í tilefni þessa.